Sigmundur Ernir deilir harkalega á forsetann: Tók eigin hag fram yfir þjóðarhag
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, deilir harkalega á forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á bloggi sínu í dag vegna synjunar forsetans á Icesave-lögunum. Segir hann að forsetinn hafi tekið eigin hag fram yfir þjóðarhag.
Heimildir Eyjunnar herma að skrif Sigmundar endurspegli gífurlega reiði í garð forsetans innan Samfylkingarinnar. Einn heimildarmanna tók svo til orða að flokkurinn hefði gefið veiðileyfi á forsetann og á næstunni yrði þungum orðum og stórum beint að honum frá flokksmönnum.
„Forseti Íslands gæti komist í sögubækurnar fyrir annaðtveggja; að fella fyrstu hreinu vinstri stjórnina í sögu landsins, eða vera sá forseti í sögu lýðveldisins sem fyrstur þarf að segja af sér embætti,“ skrifar Sigmundur Ernir á bloggi sínu.
Þingmaðurinn tekur í sama streng og flokkssystir hans, Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður, á Eyjubloggi í morgun, að verði Icesave-lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu sé forsetanum varla sætt lengur. Verði Icesave-lögunum hafnað, sé ríkisstjórninni varla sætt lengur.
„Álit mitt á forsetanum er annars þetta“, skrifar Sigmundur: “Hann tók eigin hag fram yfir þjóðarhag þegar hann neitaði lögunum staðfestingar. Hugvísindamaðurinn sjálfur beitti veikum rökum máli sínu til stuðnings; óvísindalegri könnun sem byggði á því ólíka mati fólks að borga ekkert, helst ekkert, eitthvað, eða ekki eins mikið – og svo var hitt og kannski lyginni líkara; á samtölum og áskorunum stjórnarliða sem enginn þeirra kannast við. Nákvæmlega enginn. Því máli fylgja fréttastofur vitaskuld eftir.“
Og Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður lýkur pistli sínum þannig: “Forsetinn hefur tekið upp hanska helstu kapítalista heims, sem suður í Kaliforníu kjósa um allar fjárreiður hins opinbera, þar með taldar skattahækkanir, enda er ríkið a tarna gjaldþrota fyrir vikið. Engum nálægum þjóðum dettur til hugar að setja íþyngjandi byrðar í þjóðaratkvæði – og það vita hugsvísindamenn. En gott og vel … við skulum samt kjósa … eftir röskan mánuð – og þá mun þjóðin vita hvað er í húfi. Í millitíðinni myndi ég halda að forsetinn væri búinn að fara í lúxusferð til Indlands og skilja þjóðina eftir heima í ruslflokki … Það er eftir öðru …“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is