Nýtt Hollywood par: Marylin Manson og Evan Rachel Wood
Þá er hinn ofurfarðaði Marylin Manson búinn að finna sér nýtt kvonfang en sú er engin önnur en Evan Rachel Wood.
Parið mun ganga í það heilaga innan skamms en Marylin bað hennar fyrir ekki svo löngu.
Þetta átti sér stað í París þar sem goth-pönkarinn ógurlegi bað hennar af sviði þar sem hann hélt tónleika.
Þau hafa átt stormasamt samband síðan árið 2006, nokkrum sinnum hætt saman en óðar tekið upp þráðinn aftur.
Þegar þau hættu saman síðast lét Manson hafa það eftir sér í viðtali að hann gæti ekki hætt að hugsa um hana.
Hann væri einfaldlega með þráhyggju.
Hún hefur yfirleitt varið allar hans gjörðir opinberlega og gagnrýni á að þau passi illa saman en tæp 20 ár eru milli þessara ólíku einstaklinga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is