Heidi Montag (23): Gersamlega sjúk í fegrunaraðgerðir -10 aðgerðir á einum degi!
Poppstjarnan Heidi Montag hefur viðurkennt fyrir heiminum að vera sjúk í fegrunaraðgerðir.

Þessu greinir hún frá í nýjasta hefti tímaritsins People.
Þar segir Heidi frá því að þann 20 nóvember s.l hafi hún farið í TÍU aðgerðir á einum degi.
Hún segist hafa hugsað um þennan dag undanfarin 3 ár og velt því fyrir sér hverju hún gæti látið breyta.
„Ég er með algjöra þráhyggju á svona aðgerðir. Allar stjörnur fara í svona aðgerðir til að halda útlitinu við. Fólk talar bara ekki um þetta. Ég vildi koma hreint fram,“ segir poppstjarnan.
Næst ætlar hún að láta stækka brjóstin upp í DDD skálar. „Ég er byrjuð að plana þetta og er staðráðin í að hafa þau stærri“.
Hér eru aðgerðirnar sem Heidi fór í með stuðningi eiginmannsins Spencer Pratt:
Nefaðgerð, minnkuð haka, augabrúnum lyft, bótox í ennið og kringum munninn, fitu sprautað í kinnarnar, fitusog á hálsi, eyrun sett aftur, fitusog á mjöðmum, mitti og lærum, rassinum lyft og brjóstum breytt.
Heidi hefur ekki komið fram opinberlega eftir aðgerðina fyrr en í þessu viðtali við blaðamann People.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is