Formenn stjórnmálaflokka funda um Icesave-málið í dag. Óvissa um ný samningsmarkmið
Formenn stjórnmálaflokkanna hittast væntanlega að nýju í dag til að ræða mögulegar samningaviðræður um Icesave. Fréttablaðið segir í dag að bíða oddvitar ríkisstjórnarinnar bíði viðbragða frá stjórnarandstöðunni. Þeim þyki standa upp á hana að lýsa yfir þeim samningsmarkmiðum sem hún vilji stefna að, um hvað verði hægt að ná samstöðu í viðræðum við Breta og Hollendinga.
Fréttablaðið rifjar upp að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi báðir sagt á mánudag að ótímabært væri að nefna samningsmarkmið. „Við höfum ekki farið út í nein smáatriði samningsins á meðan það hefur ekki einu sinni legið fyrir að stjórnin telji að það þurfi að fá nýjan samning,“ sagði Sigmundur Davíð við Fréttablaðið í gærkvöld. Hann gagnrýndi ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir yfirlýsingar síðustu daga. „Ég hafði skilið það sem svo að menn ætluðu að sleppa öllum yfirlýsingum á meðan verið væri að finna einhverja lausn.“
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður ekki farið í viðræður við Hollendinga og Breta nema fyrir liggi samkomulag stjórnmálaflokkanna um markmið. Þá verði tryggt að slíkur samningur haldi. Fyrr séu viðsemjendur ekki til viðræðna um nýja samninga og fyrr sé ekki ástæða fyrir ráðherra til að setjast yfir málið. Blaðið segir að ráðherrar og embættismenn hafa þó hitt breska og hollenska kollega sína undanfarið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is