Föstudagur 15.01.2010 - 14:56 - Ummæli ()

Fullyrt að strandveiðarnar í sumar hafi gefist vel. Glæddu margar byggðir landsins lífi

dsc02075.jpgStrandveiðarnar í sumar gengu vel og reynslan af þeim sýnir að áfram ber að stefna á sömu braut í útgerð. Leyfi til veiðanna skiptust milli margra aðila og ekki á fárra hendur og þó veiðarnar sem slíkar hafi verið minni en ráð var fyrir gert er engin spurning að þær glæddu margar sjávarbyggðir landsins nýju lífi.

Hyggst Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, beita sér fyrir að strandveiðarnar verði stundaðar til frambúðar.

Þetta er grunntóninn í nýrri úttekt Háskólaseturs Vestfjarða sem unnin var að undirlagi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Komast skýrsluhöfundar að því að þó aflabrögð hafi verið ákaflega misgóð á þeim fjórum svæðum sem veiðar voru stundaðar sé langflestir sem að hafi komið afar ánægðir með þessa fyrstu vertíð.

Um 20 prósent þeirra aðila sem útgerð stunduðu þá þrjá mánuði sem veiðar voru leyfðar eru nýliðar í útgerð en að auki voru fjölmargir nýliðar í áhöfnum þeirra báta er út voru gerðir. Söfnuðust leyfi til veiðanna þannig ekki á fáar hendur og meirihluti þeirra voru smærri útgerðir eða einstaklingar.

Aflaverðmæti meðalbáts í sumar reyndist vera 1,5 milljón krónur og tala skýrsluhöfundar sérstaklega um að strandveiðarnar hafi glætt marga sjávarbyggðina nýju lífi yfir sumarmánuðina. Áhrif veiðanna á atvinnulíf hins vegar voru ekki augljós að þeirra mati.

Skýrslan í heild sinni hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is