Formaður iðnaðarnefndar: Gagnaverið aftur í gang. 100 manns fá atvinnu, 90 milljarða fjárfesting
Uppbygging gagnavers á Suðurnesjum er aftur komin á rekspöl eftir að nýr kjölfestufjárfestir frá Bandaríkjunum gekk til liðs við verkefnið. Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, telur að í kringum 100 manns muni fá vinnu við gagnaverið og að kostnaður við þessa fjárfestingu nemi um 90 milljörðum króna.
„Mikilvægur áfangi í uppbyggingu græns hagkerfis á Íslandi er í höfn með aðkomu kjölfestufjárfestis frá Bandaríkjunum að því að reisa fyrsta vistvæna gagnaverið á Íslandi. Um er að ræða góðgerðasjóðinn Wellcome Trust sem verður nú stærsti hluthafinn í Verne Holdings ehf. móðurfélagi Verne Global og þar með ráðandi aðili í uppbyggingu þess fyrirtækis á því sem kallað hefur verið heildsölugagnaver á Suðurnesjum,“ skrifar Skúli í pistli sínum.
„Ekki liggja fyrir upplýsingar á þessu stigi um hlutafjárframlag Wellcome Trust, en þó má leiða líkum að því að hann verði nú a.m.k. jafnstór og fyrri hluthafar til samans, þ.e. General Catalyst og Novator. Með þessum tíðindum verður vonandi hægt að koma verkefninu aftur á rekspöl en sem kunnugt er var öllum framkvæmdum við verkefnið frestað á dögunum,“ skrifar Skúli.
Wellcome Trust er góðgerðarsjóður á sviði heilbrigðisrannsókna, næststærsti stuðningsaðili rannsókna á sviði líffræði og læknisfræði í heiminum. Aðkoma sjóðsins er m.a. skýrð með áherslu þeirra á baráttuna gegn loftslagsvánni og fyrir orkusparnaði í heiminum. Að mati Skúla er um að ræða mikilsverða traustsyfirlýsingu við íslenskt atvinnulíf nú þegar hennar er mest þörf.
Bendir Skúli á að fjárfestingarsamningur stjórnvalda og Verne Global er nú til umfjöllunar í þinginu og að iðnaðarnefnd komi saman á mánudagsmorgun til að fara yfir stöðuna og koma frumvarpinu í umsagnarferli. „Sá samningur er mikilvæg forsenda þess að koma málinu í heila höfn en ívilnun stjórnvalda er þó hófleg og tímabundin, ólíkt t.d. þeim fjárfestingarsamningum sem stjórnvöld fyrri tíma hafa gert um stóriðjuuppbyggingu í landinu,“ skrifar Skúli.
„Uppbygging gagnaversins í Reykjanesbæ er fjárfesting að verðmæti tæpir 90 milljarðar króna, áætlað er að 80-120 manns fái vinnu við verkefnið á sjö ára byggingatíma og um 100 störf skapist við rekstur gagnaversins þegar það er fullbúið. Áætlað hefur verið að fyrsti áfanga verkefnisins verði lokið á þessu ári en það er ríflega 12 milljarða fjárfesting, sem að fullu verður fjármögnuð með hinu nýja hlutafé Wellcome Trust. Það verður velkomið innlegg í atvinnumálin á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi hefur mælst mest á öllu landinu og er nú 13,6%.
Pólitísk umræða á Íslandi hefur hverfst um Icesave og fátt annað undanfarna mánuði. Sannarlega er nauðsynlegt að koma því örlagaríka máli í sáttafarveg sem leiðir til lausnar. En uppbygging nýrra atvinnutækifæra , sem er nátengd velferð íslenskra heimila, er engu síður mikilvægt verkefni sem ég tel að verðskuldi náið þverpólitískt samstarf á komandi vikum og mánuðum,“ skrifar Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður iðnaðarnefndar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is