Fimmtudagur 21.01.2010 - 06:43 - Ummæli ()

Íslenska rústabjörgunarsveitin á heimleið frá Haítí eftir erfið störf. Lendir í kvöld

rusitr.jpg

Engin sérstök móttaka er áætluð fyrir íslensku rústabjörgunarsveitina sem lendir hér á landi í kvöld eftir að hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður á Haítí undanfarna daga. Þykir víst að menn séu þreyttir og lúnir eftir stanslista keyrslu í rúma viku og vilji fara beint heim til ástvina og til hvíldar.

Fréttablaðið greinir frá. 

Ákveðið var að skilja hluta af hjálpargögnum sveitarinnar eftir á Haítí vegna þess að ekki var talið forsvaranlegt að taka svo mikilvæg gögn með heim á meðan aðstæður eru enn jafnslæmar og raun ber vitni.

Gögnin eru samtals um tíu milljóna króna virði og hafa sveitirnar hafa þeirra sjálfar. Þetta eru meðal annars uppblásin tjöld, rafstöðvar, borð og bekkir, beddar og eldhúsáhöld. Tjöldin eru langdýrust, kosta um fimm milljónir, og hafa íslensk stjórnvöld þegar ákveðið að styrkja sveitina við kaup á nýjum tjöldum.
Á Bahama-eyjum geta meðlimir sveitarinnar hvílst í tíu til tólf klukkustundir og hafið áfallahjálparferlið áður en haldið verður heim á leið.

Skelfing greip um sig á Haítí í gær þegar öflugur eftirskjálfti reið yfir landið. Tjónið var þó ekki mikið og engum úr íslensku sveitinni, sem þá var sofandi í bækistöðvum sínum á flugvellinum, varð meint af.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is