Föstudagur 22.01.2010 - 12:20 - Ummæli ()

Clooney (48) vill hjálpa Damon (39) að verða kynþokkafyllsti karlmaðurinn

Matt Damon, Brad Pitt og George Clooney eru mátar miklir eftir kvikmyndirnar um Ocean gengið og senda hvor öðrum gjarnan skot og pillur í gamni. Nú vill Clooney leiðbeina Damon hvernig á að vinna öðru sinni titilinn Kynþokkafyllsti karlmaður heims.

THUMBKeppnin um Kynþokkafyllsta karlmanninn fer fram af hálfu People tímaritsins árlega en Clooney sjálfur er einn fárra sem unnið hefur þann titil tvisvar en Damon aðeins einu sinni.

Samkvæmt Entertainment Daily hefur sjarmörinn boðist til að þjálfa Damon næstu mánuði og gera hann samkeppnishæfan í keppnina svo hann geti státað sig af tveimur slíkum titlum eins og félagarnir en Brad Pitt hefur ennfremur unnið titilinn tvisvar.

Ekki fylgir sögunni hvernig Damon tók í tilboðið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is