Fjórðungur launafólks óttast um störf sín. Nálega helmingur orðið fyrir launaskerðingu
Fjórðungur launafólks í landinu óttast atvinnuleysi á næstu misserum og hartnær helmingur starfandi fólks hefur orðið fyrir launaskerðingu af einhverju taginu á liðnu ári.
Þetta kemur fram í könnun sem Alþýðusamband Íslands stóð fyrir í desember síðastliðnum. Úrtak var rúm 1100 manns og svarhlutfall 61 prósent.
Kemur þar fram að rúm 20 prósent aðspurðra höfðu orðið fyrir launaskerðingu án þess að minnka vinnuframlag. Hjá 13,6 prósentum hafði starfshlutfall verið skert og tíu prósent orðið fyrir annars konar skerðingu í starfi sínu.
Karlar hafa nokkuð áberandi orðið ver úti í kjaraskerðingunni en konur. Höfuðborgarbúar ver en íbúar á landsbyggðinni og elsti aldurshópurinn 55-75 hefur frekar orðið fyrir kjaraskerðingu en þeir sem yngri eru.Óttinn við atvinnuleysi enn til staðar í ríkum mæli í þjóðfélaginu ef marka má könnun ASÍ. 25,3% þeirra sem er í launaðri vinnu óttast að missa atvinnuna. Til samanburðar má geta þess að í árslok 2006 óttuðust 8,3% fólks að missa vinnuna. Það eru einkum karlar, íbúar á höfuðborgarsvæðinu og láglaunafólk sem óttast atvinnumissi umfram aðra hópa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is