Fyrrum ráðgjafi: Forsetinn vinnur gegn hagsmunum Íslands með ummælum um Icesave erlendis
Þolinmæði Samfylkingarinnar og náinna samherja forseta Íslands virðist vera að bresta gagnvart málflutningi hans í Icesave-deilunni á alþjóðavettvangi. Til marks um það er þung ádeilugrein sem Karl Th Birgisson, sem árum saman hefur verið í hópi nánustu ráðgjafa Ólafs Ragnars Grímssonar, birtir á vef tímaritsins Herðubreiðdar í dag undir fyrirsögninni „Taktu leikhlé, herra forseti.“
Karl Th Birgisson var í hópi örfárra manna sem vissu fyrirfram um að forsetinn mundi synja Icedave-lögunum staðfestingar. Greindi hann frá vitneskju sinni á vef Herðubreiðar nokkrum klukkustundum áður en forsetinn gerði ákvörðun sína opinbera.
Í greininni í dag segir Karl Th. Birgisson að Ólafur Ragnar Grímsson hafi breytt forsetaembættinu með ýmsum hætti síðastliðin fjórtán ár. Flest af því hafi verið til góðs, en nú sé hann lagður af stað í ferðalag sem meira að segja hann hefði líklega talið óhugsandi forðum daga.
„Það hefur alltaf verið kristaltært í málflutningi forsetans að sú ákvörðun, að synja lögum staðfestingar, gæti ekki og mætti ekki að byggjast á afstöðu hans sjálfs til laganna. Slíka ákvörðun ætti alltaf að taka af öðrum ástæðum, þó einkum eðli málsins sjálfs, til dæmis ef um væri að ræða framsal á fullveldi landsins, að myndazt hefði „gjá milli þings og þjóðar“ eða aðrar viðlíka aðstæður væru uppi,“ skrifar Karl.
Forsetinn hafi hins vegar kosið í viðtölum við erlenda fjölmiðla undanfarna daga að tala beinlínis gegn stefnu stjórnvalda í málinu. Þar renni upp úr honum yfirlýsingarnar um að málið sé byggt á fantabrögðum og fautaskap Breta og Hollendinga og að allt sé þetta nú ómögulegt, ósanngjarnt, ólýðræðislegt og svo framvegis.
„Vel má vera að einhverjum rísi þjóðernishold í fáeinar mínútur við að hlusta á þetta, en hinar frumstæðari hvatir eru ekki gott veganesti“, skrifar Karl og segir að þessi málflutningur gangi gegn tveimur prinsippum sem Ólafur Ragnar Grímsson viti að forsetinn má ekki brjóta. Hann eigi ekki og megi ekki taka afstöðu í máli sem hann hefur vísað til þjóðarinnar til ákvörðunar. Og hann eigi ekki og megi ekki haga embættisfærslu sinni þannig að á alþjóðavettvangi hafi Ísland nú tvær ólíkar stefnur í tilteknu máli – stefnu alþingis og ríkisstjórnar annars vegar og stefnu hans sjálfs hins vegar.
„Fyrir því má færa of sterk rök, að með þessu framferði sé forsetinn beinlínis að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar,“ skrifar Karl Th Birgisson sem er fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is