Rætt um breytilega vexti á Icesave-skuld. Bretar og Hollendingar krefjast greiðsluviðurkenningar
Bretar og Hollendingar eru tilbúnir að ræða breytingu á vaxtakjörum Icesave, en í staðinn krefjast þeir pólitískrar samstöðu hérlendis og viðurkenningar á greiðsluskyldu.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
Frá synjun forseta hafa íslensk stjórnvöld átt í stöðugum óformlegum viðræðum við yfirvöld í Bretlandi og Hollandi. Þær viðræður færðust á formlegt stig með fundi formanna þriggja íslenskra stjórnmálaflokka og ráðherrum frá Bretlandi og Hollandi í Haag á föstudag.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er tvennt ófrávíkjanleg krafa viðsemjenda Íslendinga. Annars vegar þverpólitísk íslensk sátt og hins vegar viðurkenning á skuldbindingum Íslendinga sem nema lágmarkstryggingu innstæðutryggingakerfis samningsins um Evrópska efnahagssvæðið; 20.887 evrum að hámarki á hvern reikning.
Óttast seinagang og synjun forseta að nýju
Öll vinna í málinu innanlands miðar að þessu. Bretar og Hollendingar óttast að niðurstaða nýrra samninga, verði af þeim, fari sömu leið og fyrri samningar; þurfi langan tíma í meðförum Alþingis og hljóti að því búnu synjun forseta.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins deila þingmenn annarra Evrópuþjóða þessum áhyggjum. Hafa þær komið fram í samtölum um lán sem tengjast efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Bretar og Hollendingar leggja einnig áherslu á að allar viðræður gangi fljótt yfir, verði af þeim.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að meðal þeirra útfærslna sem ræddar hafi verið sé að lánin verði á breytilegum vöxtum fyrri hluta lánstímans, en síðan á föstum vöxtum. Breytilegir vextir taka mið af millibankavöxtum í Evrópu, sem eru mjög lágir um þessar mundir.
Þetta er tvíeggja sverð, því óvíst er hver vaxtaþróun verður út lánstímann. Þess vegna er rætt um blöndu breytilegra og fastra vaxta.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is