Miðvikudagur 03.02.2010 - 15:02 - Ummæli ()

Björgvin G. Sigurðsson: Stjórnvöld lugu engu að erlendum eftir- litsstofnunum

bjorgvin-gsig2.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrum viðskiptaráðherra, fullyrðir að íslensk stjórnvöld hafi ekki logið neinu að erlendum eftirlitsstofnunum eins og haldið hefur verið fram af hálfu yfirmanns eftirlitssviðs hollenska Seðlabankans um íslenska Fjármálaeftirlitið.

Svo fullyrti Björgvin á Alþingi í dag en fyrirspurn þessa efnis kom frá Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Var Björgvin ráðherra viðskipta með yfirumsjón með Fjármálaeftirlitinum þegar starfsmenn þess eiga að hafa gefið hollenskum starfsbræðrum sínum kolrangar og villandi upplýsingar um stöðu Landsbanka Íslands þegar bankinn vildi hefja starfsemi í Hollandi.

Rök Björgvins voru þó ekki önnur en að benda á yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrum forstjóra FME, sem vísaði öllum slíkum ásökunum frá Hollandi til föðurhúsanna. Sagði Jónas þar að starfsmenn Fjármálaeftirlitins hefðu veitt þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans, sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Hefði starfsfólk Fjármálaeftirlitsins lagt sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is