Málum fjölgar hægt og bítandi fyrir Hæstarétti Íslands. Ívið lengri málatími en verið hefur
Málafjöldi fyrir Hæstarétti hefur aukist jafnt og þétt í kjölfar bankahrunsins í október 2008 og er nú svo komið að hann er ívið lengri en verið hefur. Þar er þó ekki glímt við þá málasprengingu sem héraðsdómstólar landsins glíma við enn sem komið er.
Að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrifstofustjóra í Hæstarétti, hefur málalistinn hægt og bítandi lengst frá því sem var og meinar hann þá þau mál þar sem munnlegur flutningur fer fram.
„Það fer nokkuð eftir því við hvað er miðað en segja má að málalistinn sé ívið lengri og mál taki nú tveimur til þremur vikum lengur að koma fyrir en verið hefur undanfarið ár eða svo. Sakamál og kærumál eru reyndar afgreidd strax eins og verið hefur og það hefur ekki breyst.“
Aðspurður um hvernig Hæstiréttur hyggist mæta þeim stóraukna málafjölda sem væntanlega lendir á Hæstarétti í kjölfar mjög aukins álags á héraðsdómstólanna segir Þorsteinn erfitt að meta hugsanlegan vanda á þessum tímapunkti. Málið hafi verið reyfað en niðurstaðan verið sú að bíða og sjá til hvað verði. „Gangi það eftir þá verður tekið á þeim vanda þegar þar að kemur og engar sérstakar aðgerðir fyrirhugaðar vegna þessa að svo stöddu.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is