Milljarða úttektir úr peninga-markaðssjóðum rétt fyrir hrun. Innherjaupplýsingar misnotaðar?
Embætti sérstaks saksóknara rannsakar hvort þeir sem tóku peninganna sína út úr peningamarkaðssjóðum Landsbankans, Kaupþings og Glitnis skömmu fyrir bankahrun hafi búið yfir innherjaupplýsingum.
Sagt er frá þessu í Viðskiptablaðinu í dag.
Í frétt blaðsins er rifjað upp að lokað var fyrir viðskipti í þessum sjóðum 3. október 2008. Síðustu vikuna sem þeir voru opnir runnu alls um 68 milljarðar króna úr sjóði Landsbankans, sjóður Kaupþings minnkaði um tæpa fjórtán milljarða króna og útflæði úr sjóði Glitnis var 19,4 milljarðar króna.
Samtals runnu rúmlega 100 milljarðar króna út úr peningamarkaðssjóðum stóru bankanna þriggja síðustu vikuna áður en þeim var lokað að sögn Viðskiptablaðsins
Þá segir blaðið að sérstakur saksóknari kanni einnig hvort einhver lög hafi verið brotin við kaup sjóðanna á skuldabréfum útgefnum af helstu eigendum bankanna og félögum tengdum þeim.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is