Fimmtudagur 04.02.2010 - 09:57 - Ummæli ()

Össur græddi 30 milljónir: Engin fyrirstaða hjá mér vilji menn rannsaka þetta eitthvað

spron-bygging.jpgÖssur Skarphéðinsson hagnaðist um 30 milljónir króna eftir að hafa greitt skatta af stofnfjárbréfum í SPRON sem hann seldi rétt áður en sparisjóðurinn var settur á markað 2007. Hann segir í viðtali við dv.is að þetta séu fullkomlega eðlileg viðskipti, en verið er að skoða hvort sala hans og fleiri aðila flokkist undir innherjasvik.

„Þetta eru fullkomnlega eðlileg viðskipti. Eins og margoft hefur komið fram hef ég átt stofnbréf í SPRON frá því áður en ég hóf þátttöku í stjórnmálum. Ég ákvað hins vegar að losa mig við þau um það leyti eða eftir að ég varð ráðherra,“ er haft eftir utanríkisráðherra. Hann segist hafa litið svo á að óþægilegt væri fyrir ráðherra að eiga hlut í svona stofnun og því hafi hann ákveðið að selja bréfin.

„Ég seldi þau fyrir 62 milljónir króna að mig minnir rétt. Þetta eru bréf sem keypt eru á löngum tíma. Ætli hagnaðurinn hafi verið í kringum 30 milljónir og af því greiddi ég skatta á árinu 2007,“  hefur dv.is eftir Össuri.

„Ég hafði engar upplýsingar um stöðu þessa fyrirtækis umfram það sem var að finna í fjölmiðlum,“ segir Össur en ásakanir um innherjaviðskipti hafa loðað við viðskiptin að sögn dv.is.

„Ég sá á eftir þessum bréfum. Leit á þau sem nokkurs konar lífeyrissjóð fjölskyldu minnar,“ segir utanríkisráðherra, sem var iðnaðaráðherra þegar salan átti sér stað. Hann segir allt uppi á borðinu hvað þessa sölu varðar og að hún standist alla skoðun verði hún rannsökuð eitthvað nánar. Og það er engin fyrirstaða að minni hálfu ef menn vilja rannsaka þetta eitthvað frekar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is