Þriðjudagur 09.02.2010 - 15:22 - Ummæli ()

Eiginkona Ellen DeGeneres segir frá anorexíu, ást og samkynhneigð í opinskárri bók

Hin íðilfagra eiginkona Idol dómarans Ellen DeGeneres, Portia De Rossi, ætlar að opna sig um ástir og anorexíu í bók sem kemur út síðar á þessu ári.

ellen-portia-peoples-choice.jpgÞar mun hún greina frá baráttu sinni við átröskunarsjúkdóminn anorexíu, en hún segir að enginn geti skilið hugsanagang anorexíusjúklings betur en annar anorexíusjúklingur.

„Ég mun segja frá og fjalla um öll leyndarmálin sem nánast gengu af mér dauðri,“ segir Rossi sem heitir réttu nafni Mandy Rogers.

„Ég misbauð líkama mínum. Var með búlimíu og notaði megrunarlyf af ýmsum gerðum. Mig langar að fjalla um þetta allt og auðvitað kemst ég ekki hjá því án þess að koma inn á kynhneigðina.“

Í viðtali við (tímarit samkynhneigðra) The Advocate greinir hún líka frá ástinni sem hún fann í sambandinu við DeGeneres en þær giftu sig í hittifyrra.

„Hamingjan er valkostur,“ segir De Rossi. „Þú getur valið að þakka stöðugt fyrir það sem þú hefur í lífinu og laga það sem gerir þig óhamingjusama.“

„Mér finnst mikilvægt að sýna heilindi gagnvart því sem maður er og ef þú ert í góðu hjónabandi og gengur vel í lífinu þá skiptir máli að segja fólki frá þessu og hvernig þú ferð að. Ég segi konunni minni frá öllu, öllu óöryggi mínu og áhyggjum og eftir smá tíma þá líður mér alltaf betur. Við hjálpum líka hver annari. Ég held athygli hennar á því sem skiptir máli og heildarmyndinni. Ég held að þetta geri góð pör fyrir hvort annað,“ segir þessi fagra samkynhneigða leikkona.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is