Nýjar Icesave-viðræður hefjast eftir helgina. Nýtt samingstilboð Íslands á borðinu
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Samkvæmt heimildum blaðsins viðurkennir Ísland greiðsluskyldu lágmarksfjárhæðar innstæðutryggingakerfis EES en hún nemur rúmlega 20 þúsund evrum á reikning. Er það önnur tveggja forsendna þess að Bretar og Hollendingar séu reiðubúnir til nýrra viðræðna. Hin er íslensk pólitísk eining, sem náðst hefur hér á landi að undanförnu.
Í samningsramma Íslands er fjallað um vaxtakjör, greiðsluhraða og meðferð eigna í búi Landsbankans.
Ákveðið hefur verið að Bandaríkjamaðurinn Lee C. Buchheit fari fyrir nýrri íslenskri samninganefnd. Samkvæmt upplýsingum blaðsins nýttist þekking hans og reynsla við gerð íslensku samningsmarkmiðanna. Sama á við um ráðgjöf Kanadamannsins Dons Johnston sem áfram mun vinna að málinu. Ekki er ákveðið hvort forystumenn stjórnmálaflokkanna munu setjast í samninganefndina eða skipa baknefnd eiginlegrar samninganefndar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Formlegar samningaviðræður um Icesave milli íslenskra stjórnvalda annars vegar og breskra og hollenskra stjórnvalda hins vegar hefjast í næstu viku.