Þverpólitísk samstaða er lykill að lausn. Skapar ný sóknarfæri í Icesave-deilunni
Össur og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafa átt fundi með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, og Miguel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, sem gegnir einnig formennsku í ráðherraráði ESB. Össur ræddi við Moratinos í gær, einsog Eyjan greindi frá.
Ögmundur, sem vék úr ríkisstjórn á sínum tíma vegna andstöðu sinnar við Icesave-samningana, gerir ekki mikið úr því, sem virðist vera skilyrði fyrir viðræðunum nú, að Íslendingar viðurkenni lágmarkstryggingarnar, 20.887 evrur á hvern reikning.
„Ég tel það mjög vanhugsað af okkar hálfu að fara að kýta um það innbyrðis hvert uppleggið er,“ segir hann við Fréttablaðið í dag.
Afstaða Alþingis um að setja fyrirvara við greiðsluskyldu Íslands sé skýr. „Hver hins vegar niðurstaðan verður úr samningunum, það ætla ég ekki að gefa mér fyrirfram,“ segir Ögmundur.
Össur segir að það sé nauðsynlegt til að ljúka málinu „að útkljá það á ráðherrastigi en að það fari ekki í völundarhús embættismannakerfisins. Það ríkir góður skilningur fyrir því hjá Evrópusambandinu,“ sagði hann við Eyjuna í gær.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Samstaða íslenskra stjórnmálaflokka um Icesave skapar ný sóknarfæri og er forsenda þess að árangur náist. Um þetta eru þeir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sammála.