Búferlaflutningar frá Íslandi: Helmingur brottfluttra er útlendingar
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur ástæðu til að hafa áhyggjur fólksflutningum frá landinu, en bendir á að helmingur brottfluttra sé útlendingar. Því hafi ekki eins margir Íslendingar flutt frá landinu og ætla mætti af fréttum.
Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Unnar Brá Konráðsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Benti Unnur Brá á nýjar tölur félagsmálaráðuneytisins um að 4.835 fleiri hafi flutt frá landinu en til landsins og sagði hún þetta mesta fólksflótta frá Íslandi síðan seint á nítjándu öld. Sagði hún alvarlegast að flestir hinna brottfluttu væru á áldrinum 25 til 29 ára. Af þessu tilefni spurði hún forsætisráðherra hvort ríkisstjórnin hefði ekki áhyggjur af þessum búferlaflutningum.
Jóhanna tók undir að full ástæða væri að hafa áhyggjur af brottflutningi fólks frá landinu. Í svari sínu tók hún þó fram að rúmur helmingur brottfluttra væri erlendir ríkisborgarar. Engu að síður sagði hún að ríkisstjórnin hefði unnið að krafti við að sporna við þessari öfugþróun. Á meðal þess séu aðgerðir í atvinnumálum sem ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn var.
Í frétt félagsmálaráðuneytisins er sagt að tölur Hagstofunnar, þó réttar séu, gefi ranga mynd af núverandi stöðu og þróun búferlaflutninga. Er m.a. bent á að í fyrra hafi 5.780 manns flust til Íslands, en aðeins á árunum 2005 til 2008 hafi fleiri útlendingar sest að á Íslandi. Brottfluttir Íslendingar umfram aðflutta á síðasta ári hafi verið 2.465.
Af brottfluttum útlendingum á síðasta ári eru Pólverjar langflestir, en þeir voru 1.580 umfram aðflutta.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is