Þriðjudagur 16.02.2010 - 15:49 - Ummæli ()

Framkvæmdastjórn ESB samþykkir að hefja formlegar aðildarviðræður við Íslendinga

esb1.jpgFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með því að hefja formlegar viðræður við Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir heimildarmanni innan framkvæmdastjórnar ESB og segir að tillagan verði samþykkt í næstu viku.

Með þeirri samþykkt munu aðildarviðræður Íslands við ESB fara á fullt skrið eftir að leiðtogafundur ESB afgreiðir tillöguna í næsta mánuði. Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu síðastliðið sumar, þegar meirihluti Alþingis samþykkti naumlega að sækja bæri um aðild að ESB.

Í frétt Reuters kemur einnig fram að stjórnvöld á Íslandi búist væri við að aðildarviðræður taki 12 – 24 mánuði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is