Fimmtudagur 25.02.2010 - 17:01 - Ummæli ()

Breytingar á lögum um tekjuskatt: Skattayfirvöldum heimilað að kyrrsetja eignir

vg-na-1-steingrimur_j_sigfusson_120.jpgSamkvæmt nýju frumvarpi um breytingar á lögum um tekjuskatt sem kynnt var á Alþingi í dag munu skattayfirvöld eftirleiðis hafa heimildir til kyrrsetningar eigna en slíkt ákvæði hafa þau ekki haft hingað til. Er ákvæðið sérstaklega sett til að koma í veg fyrir að eignum sé skotið undan með skipulegum hætti.

Nánar tiltekið er það skattrannsóknarstjóri sem fær kyrrsetningarheimild en þó aðeins til greiðslu skatta og skylda á borð við skattkrafna, fésekta annarra og sakarkostnaðar í brotamálum. Er það fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sem mælir fyrir frumvarpinu en það fór fyrir nefnd eftir skamma umræðu á þingi í dag. Er talið víst að það verði að mestu samþykkt í núverandi mynd og verði að lögum fljótlega.

Hafa margir kallað undanfarna mánuði eftir slíkum lögum enda fjölmörg skrásett dæmi um tilfærslu eigna og fjár bæði milli félaga og eins milli landa. Verði lögin samþykkt munu skattayfirvöld geta spornað við þessari þróun að einhverju leyti.

Sagði Steingrímur enda á þinginu að lögum þessum væri ætlað að tryggja greiðslur vegna yfirvofandi skattkrafna. Mikilvægt sé að tryggja að eignum sé ekki komið undan og allra síst í sakamálum sem kannski taka mánuði og jafnvel ár í meðförum lögreglu og saksóknara.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is