Fimmtudagur 25.02.2010 - 18:26 - Ummæli ()

Icesave-fundi í London lokið án niðurstöðu. Óvissa um framhaldið.

london-6.jpgIcesave-viðræðurnar í London kunna að hafa siglt í strand í dag. Þeim er lokið án niðurstöðu og ekki hefur verið boðaður annar fundur.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Heimildarmaður RÚV sagði að fulltrúar Breta og Hollendinga, sem mættu á fundinn, hafi ekki haft umboð til að taka neinar ákvarðanir. Þess utan sé enn himinn og haf á milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar.

Ekki hefur náðst í Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra til að fá nánari upplýsingar um stöðu mála.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is