Skiptastjóri vill rifja 4 milljarða arðgreiðslu Fons til eigenda. Peningarnir hurfu í Lúxemborg
Í dag verður þingfest stefna þrotabús Fons á hendur Pálma Haraldssyni, Jóhannesi Kristinssyni og eignarhaldsfélagi þeirra, Matthews Holding S.A. í Lúxemborg, vegna arðgreiðslu sem þeir greiddu sér úr félaginu árið 2007. Alls ætlar skiptastjórinn, Óskar Sigurðsson, að höfða ellefu riftunarmál vegna lána og arðgreiðslna sem áttu sér stað hjá Fons síðustu tvö árin fyrir þrot félagsins.
Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu í dag.
Fram kemur að í stefnunni vegna arðgreiðslunnar sé upplýst að á aðalfundi Fons 21. ágúst 2007 hafi eigendur félagsins ákveðið að greiða eina hluthafa félagsins, Matthews Holding, 4,4 milljarða króna í arð vegna frammistöðu á rekstrarárinu 2006. Samþykktin var gerð með fyrirvara um samþykki Landsbanka Íslands sem var ætlað að lána fyrir arðgreiðslunni. Lánanefnd Landsbankans samþykkti málið hinn 7. september 2007 og viku síðar voru fimm greiðslur millifærðar frá bankanum inn á reikning Matthews Holding hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Samanlögð upphæð þeirra nam 4.180 milljónum króna og í bókum Fons er sagt að um arðgreiðsluna sé að ræða. Þrotabú Fons veit ekki hvað varð um þetta fé eftir að það fór til Lúxemborgar.
Að sögn Viðskiptablaðsins telur skiptastjóri gögn sýna að um gjafagjörning hafi verið að ræða. Matthews Holding er sagt eignalaust í dag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is