Fimmtudagur 25.02.2010 - 09:40 - Ummæli ()

Steingrímur: Tíminn að renna út. Reynt til þrautar að ná samningum fyrir helgi

steingr-j-kosningar2.jpg

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að reynt verði til þrautar næstu sólarhringana að ná samningum við Breta og Hollendinga vegna Icesave-skuldbindinganna.

Í viðtali við morgunútvarp Rásar 2 í morgun sagði hann að tíminn væri að renna út og þú yrði reynt til þrautar.

„Það er á meðan er, það er verið að reyna að láta á það reyna hvort ekki sé viðræðugrundvöllur til að ljúka málinu. Það er ákaflega mikilvægt að það takist. Við höfum í raun og veru ekki nema þessa klukkutíma og sólarhringa fram að helgi til að láta á þetta reyna,“ sagði Steingrímur.

Enginn vandræðagangur vegna ESB

Þá var hann spurður hvort ekki væri vandræðalegt fyrir hans flokk, Vinstri græna, að vera í ríkisstjórn sem fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann taldi ekki svo vera. Um þetta hefði einfaldlega verið samið í stjórnarsáttmála og því ekkert sem ætti að koma fólki á óvart núna. Þá teldi mikill meirihluti þingmanna VG það einfaldlega lýðræðislegt að leyfa þjóðinni að kjósa um aðildarsamning þegar hann liggi á borðinu. Við það verði staðið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is