Halldór J: Pólitík réði sölu á bönkunum árið 2002. Afdrifarík mistök að sameina ekki
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, telur að alvarleg mistök hafi verið gerð við einkavæðingu bankanna árið 2002. Betra hefði verið að sameina Landsbankann og Búnaðarbankann fyrst, en tryggja síðan dreifða eignaraðild. Pólitík hafi ráðið því að svo varð ekki.
Þetta kemur fram í viðtali við Halldór í DV í dag.
Halldór býr nú og starfar í Kanada, fylgist álengdar með endurreisninni og hefur lítið viljað tjá sig um bankahrunið. Hann telur að afdrifarík mistök hafi verið gerð þegar komið var í veg fyrir samruna Landsbankans og Búnaðarbankans áður en bankarnir voru einkavæddir.
„Að sjálfsögðu voru við söluna sjálfa stjórnmálaleg sjónarmið sem réðu varðandi söluferlið og aðferðir. Stjórnvöld mótuðu stefnuna og áttu að gera það. Ég get litlu bætt við það sem aðrir nær því ferli hafa sagt. Hitt get ég viðurkennt eftir á, að fráhvarf frá stefnumótun um dreifða eignaraðild er umhugsunarefni. Ég studdi söluferlið 2002 en sé þetta betur eftir á,“ segir Halldór við blaðið.
Reynt að bjarga bönkunum allt árið 2008
Þá kemur fram í máli hans að alvarlegar samræður ráðherra, embættismanna og stjórnenda bankanna hafi farið fram í ráðherrabústaðnum um vanda bankanna í febrúar 2008. Slík vinna hafi síðan haldið áfram allt fram að hruni, án þess að tækist að finna leið til að koma í veg fyrir gjaldþrot bankanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is