Mánudagur 01.03.2010 - 11:13 - Ummæli ()

Henrý Þór til liðs við Eyjuna með Gulu pressuna

gulapressan2010.jpgHenrý Þór Baldursson gengur í lið með bloggurum Eyjunnar í dag og birtir fyrstu myndina í Gulu pressunni á nýjum vettvangi.

Henrý Þór hefur að undanförnu birt efni sitt á Pressunni, en honum var sagt upp um helgina eins og Eyjan hefur greint frá.

Það er The Laundromat Café í Kaupmannahöfn, sem Friðrik Weisshappel rekur, sem styrkir gerð Gulu pressunnar.

Ritstjórn Eyjunnar býður Henrý Þór velkominn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is