Mánudagur 01.03.2010 - 22:11
- Ummæli
()
Könnun: Meirihlutinn fallinn í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin með 6 fulltrúa hvor
Núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur er fallinn samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup sem Sjónvarpið sagði frá í kvöld.
Ef kosið yrði nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn 6 fulltrúa, Samfylkingin 6 og Vinstri grænir 3 fulltrúa. Aðrir flokkar fengju engan mann kjörinn.
Sjáfstæðisflokkurinn fengi 37% fylgi, Samfylkingin 34%, Vinstri hreyfingin – grænt framboð 19%, Framsóknarflokkurinn 5%, Besti flokkurinn 3% og Frjálslyndi flokkurinn 2%.
11% sögðust mundu skila auðu.
Í dag hefur Sjálfstæðisflokkurinn 7 fulltrúa í borgarstjórn og Framsóknarflokkurinn 1. Saman mynda flokkarnir meirihluta. Samfylkingin hefur 4 borgarfulltrúa, Vinstri grænir 2 og F-listi 1.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is