Manuela Ósk: Hefði aldrei tekið þátt eins og erótískur dansari
Manuela Ósk Harðardóttir, sem hlaut titilinn Ungfrú Ísland árið 2002, er ekki par hrifin af vinnubrögðum aðstandenda Ungfrú Reykjavík keppninnar sem haldin var síðasta föstudag.

Á bloggi sínu skrifar Manuela að stelpurnar hafi verið glæsilegar og allt gott og blessað með það en hún veltir því jafnframt fyrir sér síðan hvenær keppnin hafi breyst í undirfatasýningu:
“Hvenær breyttist Fegurðarsamkeppni Íslands úr hefðbundinni fegurðarsamkeppni þar sem tíðkast að keppendur komi fram á sundfötum – í hálfgerða Victoria´s Secret tískusýningu – með blúndu naríum, sokkaböndum og push-up brjóstarhöldurum!?„
Manuela segir líka að hefði hún átt að klæðast svona á sínum tíma þá hefði hún aldrei tekið þátt í keppninni:
„Ef ég hefði átt að koma fram í svona múnderingu á sínum tíma, þá hefði ég sleppt því að keppa! Tilhugsunin um að spranga um sviðið eins og erótískur dansari með afa minn og ömmu í salnum – ehhh, ég held ekki!,“ segir Manuela og spyr svo að lokum:
„Hvar er klassinn??“
Myndir af keppendum má m.a. sjá hér á blogginu hennar Manuelu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is