Enn ágreiningur við Breta og Hollendinga um Icesave. Óvissa um framhaldið
Veruleg óvissa er uppi um það hvernig Icesave-viðræðunum við Breta og Hollendinga reiðir af. Allar líkur eru á því að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin verði á laugardaginn eins og áformað hefur verið.
Þetta er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á fréttavef Morgunblaðsins í kvöld. Hann segir að ennþá beri töluvert í milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar.
Fram kemur að fundi samninganefnda landanna þriggja lauk án markverðrar niðurstöðu um sex leytið í kvöld. Bretar lögðu þó fram nýjar hugmyndir, en að sögn Steingríms breyta þær ekki miklu um framgang viðræðnanna.
Ekki hafa verið skipulagðir frekari fundir á morgun. Engu að síður segir Steingrímur samkvæmt fréttavef Morgunblaðsins að viðræðurnar hafi ekki verið blásnar af. Farið verði yfir nýjar hugmyndir Breta, þótt þær breyti líklega ekki miklu.
Loks er haft eftir fjármálaráðherra að líklegast sé úr þessu að af þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin verði nk. laugardag, eins og reyndar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði fyrr í dag. Stjórnarandstaðan taki í sama streng.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is