Fimmtudagur 04.03.2010 - 12:24 - Ummæli ()

Gjaldeyrisbraskið: Ekki með öllu útilokað að hægt verði að leggja hald á eignir fjórmenninganna

peningar-gjaldeyrir1.jpgHelgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir ekki alveg útilokað að haldleggja þá tæpu tvo milljarða króna sem fjórmenningarnir sem grunaðir eru um stórfellt gjaldeyrisbrask eiga á sænskum reikningum þrátt fyrir að sænskur dómstóll hafi neitað lögreglu um leyfi til þess arna.

Eyjunni lék forvitni að vita hvort með öllu væri fyrirmunað að nálgast fé þetta sem geymt er á bankareikningi í Svíþjóð. Liggur ljóst fyrir að um er að ræða hluta þess fjár sem fjórmenningarnir græddu vegna gjaldeyrisviðskipta sinna framhjá lögum um gjaldeyrisviðskipti. Hafa fróðir skotið á að fjórmenningarnir hafi grætt alls milli þrjá og fjóra milljarða króna vegna viðskipta sinna en það er þó ekki staðfest.

Málið er enn til rannsóknar og töluvert starf enn framundan áður en til greina kemur að kæra viðkomandi en þeir fjórmenningar ganga allir lausir í dag. Vilja þeir allir meina að þeir hafi ekki brotið nein lög enda starfað í Evrópu en ekki á Íslandi og þar séu engin höft í gangi á flæði gjaldeyris.

Helgi Magnús vildi ekki skýra frá því hvaða leiðir aðrar væru færar eftir að héraðsdómur í Stokkhólmi hafnaði beiðni um haldlagningu fjárins af hálfu embættis efnahagsbrotadeildar. Þær væru þó til staðar og ekki með öllu útilokað að féð endurheimtist. Það ylti hins vegar á hvort það væri enn á viðkomandi reikningi en sterkar líkur eru á að eigendur færi peninga sína annað hafi þeir ekki þegar gert það.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is