Fimmtudagur 04.03.2010 - 13:40 - Ummæli ()

Helstu stjórnendur ÍAV halda völdum sínum og áhrifum. Þrettán milljarðar afskrifaðir

iav_1032153251.jpgStjórnendur og hluthafar Íslenskra aðalverktaka munu halda miklum völdum og hafa áfram áhrif innan fyrirtækisins þrátt fyrir yfirtöku svissneska fyrirtækisins Marti Contractors. Er þetta fullyrt í Pressunni sem segir að stjórnendur, þeir sömu og ráku fyrirtækið því sem næst í þrot, hafa um margra mánaða skeið farið þess á leit að kaupa verktakahluta ÍAV og það hafi nú í raun gengið eftir.

Fullyrðir Pressan að Arion banki muni nú afskrifa allt að þrettán milljörðum króna vegna málsins og Svisslendingarnir séu í raun hálfgerðir leppar fyrir stjórnendur ÍAV sem haldi enn um taumana að mörgu leyti þrátt fyrir yfirtökuna.

Töluverð andstaða var við þetta ferli innan bankans enda bankinn þegar fengið yfir sig holskeflu neikvæðra ummæla frá almenningi í landinu eftir að hafa fært fyrri eigendum Haga og Samskipa þau fyrirtæki aftur á silfurfati að margra mati. Hér bætist því við þriðja slíka dæmið ef marka má frásögn Pressunar. Munu því sömu stjórnendur og hluthafar hefja leik á ný á núlli og án skulda.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is