Segja formann slitastjórnar stunda blekkingar. Óskað eftir að Hlynur Jónsson ræði við Hlyn Jónsson
Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar Frjálsa fjárfestingarbankans, lét í það skína gagnvart Samtökum lánþega að alls ómögulegt væri að ræða sölu hluta lánasafns fyrirtækisins Dróma við forsvarsmenn samtakanna sökum flækjustigs og fjölda kröfuhafa. Síðar hefur komið í ljós að eini kröfuhafinn var Hlynur Jónsson sjálfur sem formaður stjórnar Dróma en félagið hefur nú selt Íbúðalánasjóði hluta safns síns.
Þetta gagnrýna Samtök lánþega enda fengu samtökin ekki tækifæri til að gera tilboð sökum blekkinga Hlyns. Fara samtökin nú fram á með tilliti til sölu hluta lánasafns til Íbúðalánasjóðs að Hlynur Jónsson hafi sem fyrst samband við Hlyn Jónsson og kanni grundvöll viðskipta við einstaklinga í Samtökum lánþega. Telja enda samtökin að lánasafni Dróma sé best borgið gagnvart hagsmunum hlutaðeigenda hjá Samtökum lánþega.
Ennfremur fara samtökin fram á að eftirfarandi upplýsingar verði gefnar upp opinberlega varðandi söluna til ÍLS.
1. Hvert er kaupverð lánasafnsins?
2. Hvert er nafnverð lánasafnsins?
3. Er eingöngu um verðtryggð lán að ræða?
4. Hverjir eru forkaupsréttarhafar að lánasafninu?
5. Gefst lánþegum kostur á að kaupa sín lán á sama verði út úr Dróma hf.?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is