Föstudagur 05.03.2010 - 09:49 - Ummæli ()

Vopn í hendur smábátasjómanna: Nýting afla í frystiskipum töluvert lakari en í landvinnslu

batarpaintnet.jpgUm eins árs skeið hefur Landssamband íslenskra útvegsmanna haft allt á hornum sér hvað varðar strandveiðar þær er ríkisstjórnin gaf leyfi fyrir síðasta sumar. Ekki er víst að LÍU geti með góðri samvisku haldið áfram að níða þær veiðar þar sem glæný ítarleg skýrsla sýnir að nýting sjávarafla í frystiskipum er mikið lakari en í landvinnslu.

Skýrsluna vann Matís fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og sýnir svart á hvítu að frystitogarar vinnu mun verr úr afla en nokkurn tíma landvinnsla. Munar þar tugum prósenta samkvæmt útreikningum Matís. Hluti gagnrýni LÍU á strandveiðar smábátanna hefur einmitt verið hvers léleg nýting sé af því að senda hundruð smærri báta til að fiska hlut sem stærri togarar gætu veitt á augnabliki.

Samkvæmt skýrslunni er undantekingarlítið talið að auka megi verðmæti sjávarafurða töluvert með því að fullvinna vöruna í landi í stað þess að taka stímið beint erlendis þegar lestir frystitogaranna eru fullar eins og útvegsmenn hafa margir gert undanfarin ár. Landvinnslan skapar þannig fleiri störf og meiri verðmæti auk þess sem aflinn nýtist tæplega 30 prósent betur.

Niðurstöður þessarar skýrslu sýna að verulegur munur var á nýtingatölum í landvinnslu og sjávinnslu þ.s. flakanýting, hausanýting og nýting á aukaafurðum var umtalsvert lakari hjá frystitogaraflotanum.  Gróft áætlað var nýting í landvinnslu um 72% (massahlutfall hráefnis og afurða miðað við slægt með haus) á móti um 44% í sjófrystingu.  Ýmsar ástæður kunna að liggja að baki þeirri staðreynd að nýting afla af frystiskipum sé mun lakari en í landvinnslu, en þó má ljóst vera að umtalsverð sóknarfæri séu fólgin í að auka nýtingu hjá frystitogaraflotanum.

Skýrslan í heild sinni hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is