Fjármálaráðherra: Íhugaði afsögn sína í kjölfar synjunar forsetans á Icesave lögunum
Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon,íhugaði alvarlega að segja af sér sem ráðherra í kjölfar synjunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, á lögunum um Icesave í byrjun janúar. Hann þvertekur þó fyrir að afsögn sé í spilunum nú enda hafi kosningin í gær ekki verið nein áreiðanleikaprufa fyrir ríkisstjórnina né aðra flokka utan hennar.
Þessi orð lét Steingrímur flakka í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni í morgun.
Þar aftók ráðherra með öllu að afsögn kæmi til greina á þessum tímapunkti. Icesave málið allt væri enn óleyst og þjóðarkosningin sýndi afgerandi vilja kjósenda í landinu til málsins. Þau skilaboð væru afar skýr og á þeim myndi stjórnin taka mark í framhaldinu og reyna að leiða málið til farsælla lykta. Taldi hann úrslitin ekki veikja stjórnina að neinu leyti.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is