Mánudagur 08.03.2010 - 21:36 - Ummæli ()

Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi á morgun. Taka þarf lán til að starfrækja Fjölmiðlastofu

katrin-jakobsdottir-menntamalaradherra.jpgFjármagna verður rekstur Fjölmiðlastofu, sem áformað er að stofnsetja á þessu ári, með lántökum þar sem engin fjárveiting er til starfseminnar í fjárlögum. Búast er við því að starfsmenn verði fjórir, forstöðumaður, tveir sérfræðingar og aðstoðarmanneskja. Árlegur rekstrarkostnaður við Fjölmiðlastofu verður um 40 milljónir króna.

Þetta kemur fram í athugasemdum fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins við fjölmiðlafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Ráðherra mælir fyrir frumvarpinu á Alþingi á morgun. Frumvarpið á að taka gildi 1. maí ef það verður afgreitt sem lög frá Alþingi.

Í frumvarpinu, sem er mjög viðamikið og tekur til allra þátta fjölmiðlunar, er meðal annars lagt til að sett verði á laggirnar ný sjálfstæð stofnun, Fjölmiðlastofa. Henni er ætlað að leysa útvarpsréttarnefnd af hólmi, sem er það stjórnvald sem fer með eftirlit og umsjón með starfsemi hljóð- og myndmiðla, auk þess sem fjölmiðlastofu er ætlað að hafa sambærilegt eftirlit og umsjón með starfi allara annarra fjölmiðla. Fjölmiðlastofu er þó ætlað að hafa veigameira og sjálfstæðara eftirlits- og stjórnsýsluhlutverk en úttvarpsréttarnefnd. Ný verkefni munu koma til sögunnar bæði vegna þess að allir fjölmiðlar heyra samkvæmt þessu undir Fjölmiðlastofu og vegna nýrra fyrirmæla í hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB. Fjölmiðlastofa skal samkvæmt frumvarpinu fylgjast með stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði og safna upplýsingum þar að lútandi. Hún skal fylgjast með því að fjölmiðlaþjónustuveitendur fari að fyrirmælum laganna, t.d. hvað varðar nýjar reglur um skráningarskyldu, árlega skýrslugjöf og gagnsæi eignarhalds og beita viðurlögum þegar það á við. Þá er lagt til að Fjölmiðlastofu verði skylt að birta mun ítarlegri upplýsingar um fjölmiðla en verið hefur og er það m.a. liður í að auka gagnsæi. Stofnuninni er ætlað að staðfesta reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði fréttastofa sem útvarpsstöðvum og dagblöðum sem reka fréttastofu er skylt að setja sér og endurskoða árlega. Annar þáttur í starfi Fjölmiðlastofu er að uppfylla kröfur hljóð- og myndmiðlunartilskipunarinnar, sem og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar, og annast samskipti við sambærileg stjórnvöld í öðrum EES-ríkjum sem og alþjóðlegra stofnana m.a. varðandi lögsögu, tímabundna stöðvun sendinga og kvartanir.

Í athugasemdum fjárlagaskrifstofunnar segir að ljóst sé að samkvæmt frumvarpinu verði verkefni Fjölmiðlastofu umfangsmeiri en sú starfsemi sem verið hefur á þessu sviði. Þar sem um sé að ræða nýja stofnun með ný verkefni sé talsverð óvissa um hversu marga starfsmenn slík stofnun þyrfti að hafa en það fari t.d. eftir því hversu ítarlegum aðferðum sé beitt við eftirlititið. Miðað við áform mennta- og menningarmálaráðuneytisins og að Fjölmiðlastofa verði sjálfstæð stofnun megi gera ráð fyrir að þar þurfi að starfa a.m.k. forstöðumaður, tveir sérfræðingar og aðstoðamanneskja. Með hliðsjón af þessum forsendum gæti rekstrarkostnaður Fjölmiðlastofu numið um 40 m.kr. á ári auk 3,5 m.kr. í stofnkostnað í upphafi. Á móti gæti fallið niður um 10 m.kr. fjárheimild vegna útvarpsréttarnefndar. Auk þess sé áformað að leggja niður eitt starf hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu en starfsmaður hafi í því hefur sinnt verkefnum í tengslum við fjölmiðla.

Fjárlagaskrifstofan telur að verði frumvarpið óbreytt að lögum megi áætla, miðað við gefnar forsendur, að útgjöld ríkissjóðs gætu aukist um 28 m.kr. á ári að frádregnum fjárheimildum vegna útvarpsréttarnefndar og stöðugildis hjá mennta og menningamálaráðuneytinu auk þess sem gera megi ráð fyrir 3,5 m.kr. stofn- og upphafskostnaði fyrsta árið. Miðað við að frumvarpið taki gildi 1. maí 2010 sé ekki gert ráð fyrir því að Fjölmiðlastofa taki til starfa fyrr en á seinni part árs 2010. Þar með sé reiknað með að útgjaldaukningin komi ekki fram að verulegu marki fyrr en á árinu 2011. Hugsanlegt sé að útgjaldaaukningin verði minni ef hægt verði að koma rekstri Fjölmiðlastofu þannig fyrir að hún samnýti aðstöðu og þjónustu með annarri stofnun, t.d. Póst- og fjarskiptastofnun.

Þá segir fjárlagaskrifstofan að mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi ekki lagt fram áætlun um hvernig standa megi straum af auknum ríkisútgjöldum vegna þessarar nýju starfsemi. Vegna verulegs halla á ríkisrekstrinum verði að óbreyttu að fjármagna þessa útgjaldaaukningu með lántökum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is