Mánudagur 08.03.2010 - 11:41 - Ummæli ()

Ný könnun: 60% Íslendinga segja að þjóðin eigi ekki að ábyrgjast neinar greiðslur vegna Icesave

icesave2010.jpgTæp 60% Íslendinga telja að þjóðinni beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur á Icesave-reikningunum til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi.

Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar á vegum MMR.

Í frétt frá MMR segir að könuð hafi verið afstaða fólks til þess hvort það teldi að Íslendingum bæri að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands (Icesave) í Bretlandi og Hollandi. Af þeim sem tóku afstöðu voru í 59,4% sem sögðu að Íslendingar ættu alls ekki að ábyrgjast slíkar greiðslur, 37,3% sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslurnar að hluta til og 3,3% sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigendanna að fullu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is