Stjórnarþingmaður varar við töf á Icesave. Dýpri kreppa. „Fýsir ekki að bera ábyrgð á slíkri þróun“
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona Samfylkingarinnar varar við frekari töfum á því að ljúka Icesave-deilunni. Það muni leiða til dýpri kreppu, aukins atvinnuleysis og erfiðari stöðu ríkisfjármála. „Mig fýsir ekki að bera ábyrgð á slíkri þróun,“ segir hún í grein á vef ungra jafnaðarmanna og virðist gefa í skyn að stjórnarsamstarfið geti verið í hættu. Sigríður telur litlar líkur á þverpólitískri samstöðu í Icesave-málinu eins og mál hafi þróast.
Í greininni segir Sigríður að einhverjir telji að lausn Icesave-deilunnar geti beðið mánuðum saman, jafnvel fram á næsta ár. Þeir sem séu á þessari skoðun séu oftast nær einnig andsnúnir samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Norðurlöndin. Þetta hafi verið staðfest í vikunni sem leið þegar Hreyfingin og Framsóknarflokkurinn lögðu fram tillögu á Alþingi um að hætta þessu samstarfi og semja nýja efnahagsáætlun á öðrum grundvelli. Ríkissjórnin hafi verið á annari skoðun, þó að það sé ljóst að helstu andstæðingar Icesave innan VG hafi einnig verið andsnúnir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
„Líkurnar á þverpólitískri samstöðu um Icesave eru því ekki miklar þó að samráð um meðferð málsins sé áfram mikilvægt. Það er einnig ljóst að erfitt er fyrir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna að bera ábyrgð á efnahagsmálum þjóðarinnar ef lausn Icesave dregst lengi enn. Það þýðir dýpri kreppu, aukið atvinnuleysi og erfiðari ríkisfjármál. Mig fýsir ekki að bera ábyrgð á slíkri þróun,“ skrifar hún.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is