Mánudagur 08.03.2010 - 16:29 - Ummæli ()

Undirmönnun enn grafalvarlegt vandamál hjá lögreglunni. Margir að hugsa sinn gang

4179.jpgUndirmönnun er ennþá grafalvarlegt vandamál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og eru margir lögreglumenn að hugsa alvarlega sinn gang. Undirmönnum þýðir ekki aðeins að öryggi lögreglumannanna sjálfra er skert til muna heldur ekki síður er þjónusta við borgarana mjög takmörkuð þegar og ef eitthvað alvarlegt gerist.

Undirmönnun hefur lengi verið vandamál hjá lögreglunni og skiptir þá engu hvaða svæðisstöð á hlut að máli. Samkomulag yfirstjórnar lögreglu við lögreglumenn um valfrjálsan vinnutíma sem gert var fyrir ári hefur litlu breytt og lögreglumenn í eða við miðbæinn geta og hafa lent í þeirri aðstöðu að vera aðeins tveir á vakt í einu á annatíma.

Hyggjast félagsmenn í Lögreglufélagi Reykjavíkur funda um málið síðar í þessum mánuði og telur Arinbjörn Snorrason, formaður félagsins, líklegast að menn óski eftir að hefðbundið vaktakerfi verði aftur tekið upp. „Það liggur fyrir að yfirstjórn lögreglu þverbrýtur aftur og aftur samkomulag um lágmarksmönnun vakta og margir hafa fengið sig fullsadda af slíku. Þarna er að ósekju verið að vega að öryggi lögreglumanna og við það verður ekki unað.“

Ekki náðist í Stefán Eiríksson, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins við gerð fréttarinnar.

* Mynd/logregla.is. Hún tengist efni greinarinnar ekki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is