Aðstandendur Rósturs ánægð með viðtökurnar. Margir sýna framtakinu mikinn áhuga
Vika er nú liðin síðan út kom fyrsta tölublað Rósturs, nýs mánaðarlegs blaðs í dagblaðaformi, en blaðið er alfarið gefið út af hugsjón og hvorki aðstandendur né greinarhöfundar þiggja nokkur laun fyrir. Útgáfa þess gekk vel að sögn Helgu Katrínar Tryggvadóttur, eins forsprakkanna, og hafa viðbrögð fólks í landinu ekki látið á sér standa.
Blaðið kemur út mánaðarlega og er algjörlega rekið fyrir gjafafé frá áhugasömum aðilum. Gefur blaðið sig út fyrir að vera alveg frjálst og óháð og engir eigendur hafa neitt um efni eða efnistök að segja. Verði ágóði af fyrirtækinu á hann að renna beint til góðgerðarmála.
Að sögn Helgu hafa ýmsir haft samband og bæði sent óskir og stuðning. Þá hafa allmargir óskað eftir að fá blaðið sent en það er eina leiðin til að fá það til sín. Kostar hvert eintak 122 krónur og bætist við póstkostnaður ofan á það gjald. Segir Helga að nægileg framlög séu nú þegar til staðar til að gefa blaðið út um tíma. „Það gerum við eins lengi og við getum enda allt starf í sjálfboðavinnu og kostnaður er enginn fyrir utan prentkostnaðinn. Svo sjáum við til hvað gerist en ef það kemur að því að áhuginn minnkar þá er þessu framtaki sjálfhætt.“
Töluverður fjöldi fólks kemur að hverju blaði og er þar mest um yngra fólk að ræða sem fengið hefur sig fullsadd af þeim fjölmiðlum sem í boði eru í landinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is