Frumkvöðlaráðstefna: 300 manns koma frá 30 löndum. Þekktir frumkvöðlar meðal þátttakenda
Gert er ráð fyrir því að um þrjú hundruð manns frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjóðlega frumkvöðlaráðstefnu í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Ráðstefnan er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovi. Meginþema ráðstefnunnar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýtanlegri orku.
Frá þessu er sagt á vef Háskólans í Reykjavík.
Fram kemur að MIT heldur slíka frumkvöðlaráðstefnu árlega í samstarfi við erlendan háskóla og er ráðstefnan í Reykjavík sú þrettánda í röðinni. MIT valdi HR til samstarfs í ár úr hópi 20 umsækjenda.
„Undirbúningur gengur mjög vel og koma þátttakendur víða að, til dæmis frá Afríku, Asíu og Ástralíu,“ er haft eftir Hrafnhildi S. Mooney, MBA-nemi við HR og einum að skipuleggjendum ráðstefnunnar.
Í hópi þátttakenda eru meðal annars stjórnmálamenn, háskólakennarar, fjárfestar og nemendur.
Þekktir frumkvöðlar verða með erindi og má þar nefna Robin Chase, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Zipcar og GoLogo. Hún var í fyrra valin ein af 100 áhrifamestu einstaklingum heims af Time Magazine.
Auk hennar halda erindi þau Alf Bjørseth, stofnandi Renewable Energy Corporation, Nader Darehshori, fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin útgáfurisans og stofnandi Cambian Learning og Ken Morse, stofnandi MIT Enrepreneurship Center, en hann hefur komið hundruðum sprotafyrirtækja á legg.
Ráðstefnan snýst þó ekki bara um fyrirlestra frá þekktum frumkvöðlum heldur einnig um það að gefa frumkvöðlum, fræðimönnum, nemendum og fjárfestum vettvang til að skiptast á skoðunum og skapa tengsl.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is