Fimmtudagur 11.03.2010 - 12:39 - Ummæli ()

Kreppunni lokið? Einkaneysla að taka við sér og kreditkortanotkun mun meiri en fyrir ári

kreditkort_artikel_3.jpgEftir sextán mánaða deyfð í einkaneyslu landsmanna virðist loks vera að birta til í þeim málum sé mið tekið af greiðslukortanotkun. Mælist kreditkortaveltan á landinu öllu heilum tveimur milljörðum króna meiri nú en á sama tíma fyrir ári og hefur velta þeirra að raunvirði verið hærri síðustu þrjá mánuði en sömu mánuði fyrir ári.

Metur greiningadeild Íslandsbanka það svo að einkaneyslan virðist vera að ná nokkru jafnvægi eftir langt samdráttarskeið. Sérstaka athygli vekur að aukninguna má að mestum hluta rekja til notkunar á erlendri grund og má draga þær ályktanir þess vegna að utanlandsferðir séu að færast í aukanna hjá almenningi sem og verslun erlendis. Á það reyndar ekki að koma á óvart en þrátt fyrir mikið fall krónunnar er enn hægt að gera ágæt kaup víða erlendis samaborið við verðlag á Íslandi.

Ekki mælist miklar breytingar á debitkortanotkuninni. Dróst hún áfram saman en velta debitkorta hefur dregist saman samfellt frá bankahruni. Heildarnotkun debitkortanna hérlendis í febrúar mælist rúmlega 27 milljarðar króna.

Veltar kredit- og debitkorta þykir góð vísbending um þróun einkaneyslu og ef rétt reynist að hún sé að ná jafnvægi metur greiningadeild Íslandsbanka það svo að neysla almennt taki fljótlega við sér eftir samdráttarskeiðið undanfarna mánuði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is