Norðmenn vilja áfram lána Íslandi burtséð frá Icesave deilunni. Aðrar Norðurlandaþjóðir því ósammála
Jonas Gahr Store, utanríkisráðherra Noregs, vonast til að forsvarsmenn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins fylgi fordæmi Norðmanna og skuldbindi ekki frekari lán til Íslands lausn Icesave deilu Íslands við Breta og Hollendinga.
Er það til merkis um breytta stöðu Norðmanna í stöðunni en þeir hafa hingað til verið fremur neikvæðir í garð Íslands. Það á hins vegar enn við um Svía, Dani og Finna sem vilja ekki leyfa frekari lánveitingar fyrr en deilan um Icesave er leyst.
Hluti þeirra lána sem AGS lánar Íslandi eru lán frá Norðurlöndunum en þegar hafa Íslendingar fengið 50 milljarða króna af 314 milljörðum alls frá gjaldeyrissjóðnum.
Fram kemur í norrænum fjölmiðlum að utanríkisráðherrar Norðurlandanna hafi hnakkrifist á fundi þeirra í gær og deiluefnið verið Icesave málið í heild sinni. Þetta segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðsinssonar, utanríkisráðherra, vera rangt í viðtali við RÚV í dag. Vissulega hafi verið deilt en ekki sé hægt að tala um að menn hafi rifist.
Engir fundir vegna Icesave hafi farið fram í vikunni en fjármálaráðherra hefur látið hafa eftir sér að slíkir fundir séu áætlaðir um eða eftir helgina.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is