Laugardagur 13.03.2010 - 12:44 - Ummæli ()

Bubbi Morthens til varnar Baugsfeðgum, Högum og Arion banka: Allt Davíð að kenna

bubbimorthens.jpgBaugsfeðgar, verslunarkeðjan Hagar og Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri hafa eignast bandamann í bloggheimum:

Höldum því til Haga að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus bera ekki ábyrgð á íslenska hruninu. … [Finnur Sveinbjörnsson] Bankastjóri Arion banka hefur útskýrt  vel þau atriði sem voru þess valdandi að ákveðið var að setja Haga á markað og leyfa núverandi stjórnendum að kaupa 15% hlut á sama verði og aðrir. Vandamál Haga eru ekki tilkomin vegna þess að fyrirtækið sé illa rekið heldur vegna þess að Seðlabanki Íslands rústaði krónunni. … Arion banki hefur ekki gert neitt ólöglegt né siðlaust.Davíð [Odddson ritstjóri Morgunblaðsins]hamast dag eftir dag. Vitandi það að reiði fólks þarf að fóðra.  Hvað er betra en að fela eigin mistök með stærstu smjörklípu sögumnar  og benda á Jóhannes í Bónus og alla hina?

Þetta eru tilvitnanir í blogg sem söngvarinn og lagasmiðurinn Bubbi Morthens er byrjaður að birta á Pressunni, en þar skrifar hann fasta pistla vikulega.

Ljóst er af bloggi hans í dag að Bubbi telur að Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes faðir hans bera enga ábyrgð á hruninu haustið 2008. Og hann telur að Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Arion banka hafi tekið réttar ákvarðanir þegar hann færði Baugsfeðgum umsjón með Högum og eignarhlut í verslunarkeðjunni að nýju á dögunum. Bubbi telur að Davíð Oddsson beri meginábyrgð á hruninu og tekur meira að segja undir þá skýringu að hann hafi keyrt Glitni í þrot af hreinum hefndarþorsta. „Helgina sem hann keyrði Glitni í þrot felldi hann íslenska hagkerfið,“ skrifar Bubbi.


«
»