Laugardagur 13.03.2010 - 22:24 - Ummæli ()

Eyþór Arnalds efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Árborg

eythor-arnalds.jpgÚrslit úr prófkjöri sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu Árborg liggja fyrir. Í efsta sæti varð Eyþór Arnalds, með 512 atkvæði í 1. sæti.

Í öðru sæti varð Elfa Dögg Þórðardóttir með 652 atkvæði í 1. – 2. sæti. Í þriðja sæti varð Ari Björn Thorarensen, hlaut 345 í 1.-3. sæti. Í fjórða sæti varð Sandra Dís Hafþórsdóttir, með 367 atkvæði í 1.-4. sæti. Í fimmta sæti varð Gunnar Egilsson, hlaut 441 atkvæði í 1.-5. sæti og í sjötta sæti varð svo Kjartan Björnsson með 473 atkvæði í 1.-6. sæti.

Alls kusu 948, á kjörskrá voru 1512 og kjörsókn því 63 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur 4 bæjarfulltrúa af 9 í bæjarstjórn Árborgar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is