Sunnudagur 14.03.2010 - 13:09 - Ummæli ()

Árni Páll: Lánafyrirtæki könnuðu ekki greiðslugetu. Veð takmarkist við markaðsvirði bíla

arnipall2.jpgÁrni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir eignalánafyrirtækin hafa lánað fólki fyrir bifreiðum án þess að kanna greiðslugetu þeirra. Hann vill að bílalán verði löguð að verðmæti bifreiða. Hann óttast ekki lögsókn vegna breytinganna.

Þetta kom fram í máli Árna Páls í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

Félagsmálaráðherra vinnur nú að því að bílalán verði afskrifuð að hluta, jafnvel að þau verði færð niður að 110% af verðmæti bifreiða. Honum finnst eðlilegt að markaðsvirði bifreiða sé trygging fyrir bílalánum. Þau hafi verið veitt út á veð í bifreiðinni og því sé eðlilegt að virði sömu bifreiðar takmarki höfuðstól lánsins.

Árni Páll segir að endanleg útfærsla þessa afskrifta hafi ekki verið ákveðin.  Eignaleigufélögin hafa sagt að miklar afskriftir setji fyrirtækin í þrot og að ríkið geti verið skaðabótaskylt vegna þess. Árni Páll óttast það ekki.  Ekki verði farið í þessar aðgerðir án þess að hafa traustan grunn til þess.

Í viðtalinu við Árna Pál kom ekki fram hvort höfuðstólar allra bílalána verði færðir niður eða aðeins þeirra sem eru hærri en sem nemur 110% af markaðsvirði.

Þá kom ekki fram hvort sambærileg lækkun höfuðstóls verði í boði fyrir íbúðalán.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is