Fiskframleiðendur og útflytjendur taka undir með sjávarútvegs- ráðherra. Allur afli í land
„Við erum alfarið sammála sjávarútvegsráðherra í þessu máli að allur afli skuli koma hér að landi enda er það vænlegast fyrir þjóðarbúið í heild og ekki veitir af nú um stundir,“ segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, við Eyjuna.
Hafa samtökin óskað eftir að ráðherra úthluti sem fyrst auknum veiðiheimildum í þorski og vilja sjá aukningu um rúmlega 40 þúsund tonn frá því sem nú er. Telur formaðurinn ekki fráleitt að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fallist á að auka þær heimildir enda ganga samtökin nokkuð fram fyrir skjöldu og vilja að slík úthlutun lúti mjög ströngum skilyrðum.
Þannig verði helmingi viðbótarinnar úthlutað sem aflamarki samkvæmt aflahlutdeild en hinn helmingurinn fari til útleigu gegn hóflegu gjaldi og alfarið bundinn við að öllum afla sé landað á fiskmarkað. Ganga samtökin enn lengra og vilja ennfremur að hundrað prósent veiðiskylda verða á viðbótaraflaheimildum, þær verði óframseljanlegar og allur flutningur milli ára eða tegunda bannaður.
Segir Jón Steinn brýna þörf á skynsemi í sjávarútvegi og á þeim nótum vilji samtökin vera ólíkt öðrum hagsmunasamtökum í greininni. Þess vegna sé meiri ástæða til bjartsýni vegna aukaúthlutunar ráðherra ef vel sé farið með auðlindina. Hann skilur lítið í yfirlýsingum Landssambands íslenskra útvegsmanna sem eru því mótfallnir að landa öllum afla að landi hér. Telur Jón Steinn það hljóta að ráðast af þröngum sérhagsmunum innan LÍÚ.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is