Fyrirtækin skulda um 112 milljarða í skatta. Hægt að fá greiðslufrest án dráttarvaxta
Til að byrja með er hægt að fá frest til 1. júlí 2011. Ekki verða lagðir dráttarvextir á kröfuna á því tímabili. Hafi fyrirtæki haldið skilyrðin er tollstjóra heimilt að samþykkja útgáfu skuldabréfa til fimm ára. Skuldabréfið er án vaxta.
Um er að ræða virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda og þing- og sveitarsjóðsgjöld sem gjaldfallið hafa fyrir 1. janúar 2010. Til að fá greiðslufrest verða viðkomandi að vera í skilum með aðra skatta og gjöld og vera í skilum allan frestunartímann.
Af þeim 112 milljörðum sem eru útistandandi eru tæpir 40 í gjaldþrotameðferð. Frumvarpið tekur til hinna 72 milljarðanna. Til samanburðar eru fjárlög ársins 2010 um 555,6 milljarðar króna.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að með þessu eigi að aðstoða fyrirtæki sem eigi í vandræðum. Mörg lífvænleg fyrirtæki berjist í bökkum vegna vanskila og sporna þurfi við því.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að aðeins hluti fjárhæðanna verði innheimtur að óbreyttu; reynslutölur síðustu ára sýni að aðeins 20 til 30 prósent innheimtist. Með þessu úrræði verði vaxtagreiðslur í allt að fimm ár gefnar eftir auk vaxta af útgefnu skuldabréfi í allt að fimm ár.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa tekið jákvætt í hugmyndina. Þeir taka þó fram að huga verði að samkeppnissjónarmiðum.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvæða hugsun felast í frumvarpinu. Taka verði á þessu vandamáli. „Okkur sýnist að verið sé að reyna það með þessu máli, að fyrirtæki séu ekki keyrð beint í gjaldþrot. Við viljum reyna að vinna með því.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Alls voru um 112 milljarðar króna í vanskilum af sköttum og opinberum gjöldum hjá atvinnulífinu um síðustu áramót, samkvæmt áætlunum. Tekur það bæði til lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri. Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um að hægt verði að fresta greiðslu á þessum skuldum.