Órói undir Mýrdalsjökli. Leiðni í Krossá snaraukist og hitastig enn hátt. Mælar eru réttir
Leiðni í Krossá undir Mýrdalsjökli hefur aukist töluvert þegar liðið hefur á daginn en það er skýrt merki þess að hraunkvika hefur blandast ánni og stemmir það við skyndilega hitaaukingu í morgun eins og Eyjan greindi frá.
Þá jókst vatnshitinn um heilar sex gráður á aðeins tveimur klukkustundum. Mælingamenn Veðurstofu Íslands hafa nú gengið úr skugga um að mælarnir séu réttir en á því lék vafi í morgun.
Segir Gunnar Sigurðsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni, við Eyjuna að gengið hafi verið úr skugga um að allir mælar virkuðu sem skyldi og það hafi verið raunin. Þá megi með vissu draga þá ályktun að hraun eða kvika hafi ollið skyndilegum hitabreytingum í morgun en það hafi tekið tíma að koma framá mælum. Segir hann áfram fylgst grannt með breytingum og standi til að fjölga mælitækjum við Krossá.
* Mynd Ólafur Sigurjónsson
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is