Mánudagur 22.03.2010 - 23:24 - Ummæli ()

Sacha Baron Cohen og Isla Fisher gengu í það heilaga eftir 8 ára samband

Breski háðfuglinn Sacha Baron Cohen sem er þekktur fyrir hlutverk sín sem Bruno, Ali G og Borat, giftist unnustu sinni Islu Fisher í gær. 

islafishersachacohenmarried.jpg

Parið hefur verið saman í átta ár, trúlofuð í sex ár og eiga saman tveggja ára barn en snemma í síðustu viku áttuðu þau sig á því að reynslutíminn væri orðinn nægilega langur og gengu því saman að altarinu.

Hjónavígslan fór fram í París fyrir viku síðan og var hún að hætti gyðinga en bæði eru þau gyðingar. Aðeins nánustu vinum og ættingjum var boðið. Skömmu eftir að Isla fékk hringinn sendi hún tölvupóst á nokkra vini sína þar sem hún greindi frá því sem gerst hafði: „Við gerðum það! Við giftum okkur! Þetta var algjörlega besti dagur lífs míns og ég saknaði ykkar allra svo mikið. Hugsaði til ykkar allann tímann en við Sacha vildum ekkert vesen -bara okkur tvö!“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is