Styrktaraðilar Sjálfstæðisflokksins kjósa flestir nafnleysi. Landsbankinn örlátastur
Mikill meirihluti þeirra sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn fjárhagslega á árunum 2002 til 2006 kjósa að upplýsa ekki um nöfn sín samkvæmt yfirliti sem flokkurinn hefur nú gert opinberan á heimasíðu sinni. Af þeim er það gera er Landsbanki Íslands örlátastur á fé til flokksins en styrkir hans nema um 44 milljónum króna yfir þetta tímabil.
Flokkurinn birtir þessar upplýsingar í samræmi við viljayfirlýsingu þá er formann allra flokka komu sér saman um á síðasta ári.
Af listanum má ráða að meirihluti fyrirtækja eða einstaklinga vill ekki opinbera stuðning sinn en haft var samband við alla þá sem styrktu flokkinn á þessum tíma. Allmargir gáfu samþykki sitt en fleiri ekki.
Hæsta greiðsla nafnlauss aðila á þessum tíma nam rúmum þrettán milljónum króna en Landsbanki Ísland var allra örlátastur fyrirtækja með alls 44 milljónir yfir árin fjögur. FL Group styrkti Sjálfstæðismenn um 30 milljónir.
Helstu styrktaraðilar og upphæðir í milljónum króna:
- Þormóður rammi – Sæberg 2,5
- VÍS 3,5
- Straumur Burðarsás 4,5
- Skeljungur 6,0
- Sjóvá-Almennar 6,6
- Landsbankinn 44,0
- Rolf Johansen 1,9
- Saga Film 6,0
- Icelandic Group 2,0
- Íslenskir aðalverktarar 5,0
- Ístak 11,0
- KB Banki 9,5
- Kreditkort hf 1,8
- FL Group 30,0
- Gámaþjónustan 1,4
- Glitnir 12,5
- HB Grandi 5,2
- Hekla 1,5
- BYGG 4,9
- Bakkavör 4,5
- Actavis 1,5
- Burðarás 2,1
- Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1,0
Listinn í heild sinni hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is